Í Írak dvelur andskoti og liggur sem ormur á fé
í USA er bjáni einn sem lét honum vopnin í té
sýklavopn, tundurdufl og kjarnorkukraftur
…núna vill hann fá vopnin sín aftur…

Í norðurhluta Kóreu er rannsókn ein í fullum gangi
ríkisstjórnin þar bera gereyðingarvopn í sínu fangi
Bandaríkjastjórn er hjartanlega sama um það
…dreymir bara um olíu Íraks og peningabað…

Í Serbíu liggur einn ráðherra í líkkistunni kaldur
til Íslands ferðast hans illgjarni reiði dánarvaldur
hefndin sæt í lofti fyrrum Júgóslavíu liggur
…meðan herinn í USA alla peningana þiggur…

Í austurhluta Íslands mun allt fyllast upp af mold
þegar virkjun verður reist á okkar “óspilltu” fold
eftir eina öld og fjárlagahrun mun hún svo hrynja
…en við höfum samt drulluna miklu til minja…

…

Ég er hættur að hugsa um þetta helvítis mál
læt ekki annarra manna klúður eitra mína sál
farinn að hugsa aftur um minn eigin hag
…Bagatello og Pepsi Max voru á útsölu í dag…

…

Þó heimur vegna nokkurra fífla falli bráðum saman
reyni ég samt að hafa það helvíti gaman
fyrir framan imbann með kertaljós og teppi
…horfi á stríðsglaða vitlausa bandaríska
eiginhagsmunasekki og fitukeppi…


-pardus-
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.