Sveif frá glugga úr glugga
Andrúmsloft fullt af fuglaþyt
Storminn lægði
Veran sprakk út

Einn rölti um bæinn
Hljóðin fjöruðu út
Allra augu ekki á mér
Þægilegt að vera

Sver við okkar hjarta
Að þarna geislaði Engill
Fyrir utan Hjölla
Sannfærðist ég

En rokið hreinsaði til
Þannig að Við erum eitt
Þú og ég,erum eins
Lítil og falleg

Ský og Sjór
Anda að og frá
Engill og Púki
Sátt næst
The Greatest trick the devil ever pulled,