Bandaríkin þyrsta í blóð,
berja niður minna fólk.
Valdagráðug veisluþjóð
verja sig með byssuhólk.

Baka menn með bombum stórum,
biðja fyrir eigin rassi.
Svelgir í sig stærðar bjórum
situr svo á sínum rassi.

Bush er lítill bíður heima,
berst fyrir sitt hvíta hús.
Ef horft er yfir heim og geima
er hann bara lítil mús.