Hringitónar gleði og sakleysis
klingja í eyrum mér
þegar þú leikur við öldurnar
og sandinn.

Orka sjávarfalla
verður aumkunnarverð
þegar þú tekur á sprett
í kapphlaupi við vindinn.

Blámi hafs og himins
speglast í tærum vötnum
augna þinna.

Og núna ætla ég
að kynna fyrir þér
fylgifisk lífsins.

Dauðann.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.