Þú brosir svona litlu, sætu brosi
með lokaðan munninn
og hallar stundum hausnum örlítið til hliðar.

Ég ljóma allur upp
og fyllist af ánægju
þegar þú brosir svona til mín.

Það geislar svo mikil fegurð,
svo mikið sakleisi,
svo mikil gleði,
svo mikil umhyggja,
svo mikið mikið meira sem orð fá ekki einu sinni líst
bara í þessu eina litla brosi.
ÉG ÆTLA AÐ BORÐA ÞIG!!!