Eigi skulum finnast
Felum okkur nú
Annars munum við deyja
Saman, ég og þú

Eldurinn hann brennur
Blokkar alla sýn
Heim til þín hann kemur
Kemur að vitja þín

Dauðinn er á hælum mér
ætlar að ryðja mér frá
Leyfðu mér að skýla þér
áður en þeir mér ná

Nú engu ég fyrir finn
takmarkinu er náð
Niður mína dauðu kinn
Fellur sorgartár

Þeir réttlæta þetta verðlag
á fólki okkar og þjóð
Og þykir það bara þjóðinni í hag
Olía fyrir Blóð.
Bulletproof & bound for glory.