eitt í léttari kantinum


Vakna. Of snemma, sé bara grátt.
Ringluð! Klukkan hringir svo hátt,
staulast á fætur, reyni að finna
löngun til þess að fara að vinna,
sinna skyldum sem draga mig niður
finn bara leiða og leti því miður.
Ískalt gólfið, saklausir fætur
þá dreymir um þúsundfalt lengri nætur.