Þegar ég gekk í salinn
var sem hún kallaði til mín
með lokuðum augum og þótta svip
/farðu ég á ekkert erindi við þig/.

Hún var sem frosin
í brúna stólnum,
með ósýnilega brynju
konan í bláa kjólnum.

http://www.listasafn.is/safnid/syningar/Syningar_20 00/ur_safneigninni/myndir/li_1140_350.jpg