Í aftankyrrð við ferjuflóa
færist húm yfir móðu og dal
á hraunnefi syngur lítil lóa
ljóð sitt til dýrðar fögrum degi.
Kvöldsólin læðist um hraun og móa
í roðageislum frá himnasal
færandi töfrabirtu um fjalladal
og fjólubláma á Laxár vegi.