Í upphafi var orðið
og orðið var gelt.

Og ég hugsaði:
Sjá þarna er orð.
Og gerði það að mínu

Bræður og systur
meðtakið:

Orðið fylltist merkingu
og hjarta mitt gleði.
Hið fyrsta skáld
úr ætt minni risið.

En telja má víst
að orðið sé notað
og ég því aðeins
afbrigði af Sorpu.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.