það kom ein dama
í pottinn minn
vissi ei hvað hún hét
eða hvað hún vildi

það kom ein dama
í pottinn minn
vissi ei hvaðan hún var
eða hvað hún vildi

það kom ein dama
í pottinn minn
með línurnar í lagi
og lögulegan rass

það kom ein dama
í pottinn minn
með augu sem tæla
og munn í stíl

það kom ein dama
í pottinn minn
mín eina sanna dís
mín eina draumadís

það fór ein dama
úr pottinum mínum
veit ekki hvað hún hét
eða hvað hún vildi