Þeir fiska sem róa
sagði gamall skarfur.
Ég tók hann á orðinu
og lagði út net.

Og í bláum ævintýraheimi
týndi ég þræðinum
og tapaði áttum
og nýjum, sexum.

Því nornir sem sátu
og hvísluðust á
höfðu ákveðið
að þráðurinn minn

þyrfti á viðhaldi að halda.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.