Dauðar kýr í köldum brauðum.
kæfðar undir sósum rauðum
Hugsa heim að fjósum auðum.
Hrynja tár úr augum dauðum.

Kindaslef og kattahár
kalla flestir ullabjakk.
Hafa þó heldur betra smakk
en heitsaxaður kúanár.