Að teyga vinda þýða,
úr suðrinu sæla
er tilbrigði við koss þinn.

Að lifa minningu,
skógarangan úr Hallormsstað
er bergmál raddar þinnar.

Að þú vitir ekki um blóm,
sem vex fyrir vestan
er tregi minn.

Og værir þú fleygur fugl,
flygir þú til mín.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.