Hamingja þín og mín
er sem friðsæl nóttin
er skartar stjörnublikum
á heiðu himinhvolfi.

Ástin okkar er sem lindin
tæra og djúpa í fjallasal
sem fangar hvert stjörnublik
úr dimmum himnasölum.

Saman sitja þær systur
djúpt í hjörtum okkar
í samhljóm um alla eilífð
umvefja þær sálir okkar.