Hann hefur bundið mig
og haldið í heljargreipum sér

Hann hefur hvíslað að mér
órökstuddum staðreindum

Hann hefur svelt mig
lífsins vatni

En í nótt lagði ég rýting
að rótum hans í brjósti mér

Og með kvalafullum öskrum
fleygði ég honum á eldinn
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.