Þeim var ég verst
er unni
ekki af öllu hjarta.

Þeim var ég kærust
er sýndi
glansmyndir af hamingju.

Þeim var ég best
er ól
sem nöðru í hjartastað.

Þeirra sakna ég mest
er gaf
bros yfir glasi.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.