Ég ræktaði eyðimörk þína

Sáði,
Vökvaði,
Bar á,
Og læknaði sár


En á meðan gleymdi ég
að mín eyðimörk
var enn sú sama;

uppþornuð og óræktuð