Sólskinskap rignir yfir hrímkalda jörð
breiðir yfir jörðina ylmjúkt teppi
speglar ásjónu sína í tandurhreinu vatni
kyssir tindrandi stjörnurnar góða nótt

ég og þú

Við liggjum nakin úti við hlýjan varðeld
elskumst hverja nótt þetta ástríka sumar
liggjandi í friðsælum faðmi horfum til himins
tölum saman uns fagurrauð sólarupprásin býður góðan dag
“True words are never spoken”