Hjálp að ofan, engilinn hans afa

Hver eruð þér?
Hví eruð þér hér?
Er það því hann er veikur?
Þökk sé þér,
sem að himnum ofan kemur
og bjargar honum.

Komið yður með mér,
hér inni hann liggur.
Í skítugu rúmi á Kanarí.
Við þá sjón sem ég sé
gnýstir mig sársauki,
sársuki hans.

Við erum hrædd
hvað gerum við nú?
Getið þér bjargað honum?
Hann er ekki tilbúinn
ekki strax.
Ekki ég heldur.

Þér verðið að skilja,
ég get ekki losað takið
um hann, ekki starx.
Því án hans er ekkert,
gott né vont.
Viljið þér hjálpa honum?

Við erum ráðalaus.
kannski er eitt ráð?
Viljið þér hjálpa honum?
Ég er tilbúin,
og hann.
Þér megið taka hann.

Viljið yður leyfa mér eitt?
kveðja hann
því hann er mér svo mikið,
það er ey lítið
hve ást mín er sterk
elsku afi

Þakka yður,
Þér hafið verið svo góð,
þér munuð alltaf,
vera hjá honum
Ekki satt?
Þakka yður.