Í vöku þig geymir hugur minn þjáður
saknaðar eldur og óvissan kvelur
Sekk dýpra sofandi, þó sálumessu kveð
Í heitustu þrá er nokkur hefur séð

Fyrir augnatillit fórnfús sáluna sel
ástarþrá í firringu, á örvæntingu el
Stolinn minn hugur, svo sterk eru öflin

Ég mun aldrei hverfa á heimkynna slóð
Bjó þó þar áður, svo saklaus, svo góð
En nú er ég villtari, svartari, syndug
en sekur þó saklaus uns sekt er sönnuð
Týnd eru sporin, ég mun ekki leita
í fjarska er líf mitt taflborð án reita
I love Stan, Stan loves ham… ham I am!