ef ég væri truflað sjónvarp
þá myndi ég trufla þína tilveru

gefa þér aðeins hljóð
og ruglaða mynd

sýna þér hvernig ætti
að búa til ljóta ostaköku

þú yrðir að horfa á mig
og ég myndi stara á móti

við yrðum föst í krónískri störu
- ég vildi að ég væri sjónavarpið þitt