Á morgnana óska ég þess
að hafa þig hjá mér.

Að vefja þig örmum,
kafa í mýkt þína
og hlýju.
Falla í þyngdarleysi
í mók.

Og vakna til veraldar,
sameiginlegra drauma
og ástar þinnar.

Ég vona.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.