Vefja skal ég örmum mínum
um háls og herðar þínar
kyssi votan vanga
og veiti þér ástúð mína.



Það er lítið blóm á lækjarbakka
sem blíðum rómi hvíslar til mín.
Angan og fegurð á ég þér að þakka
því græðandi er hún ástúð þín.