Jæja ég hef verið með eina verstu ritstíflu sem ég hef fengið um ævina og eins og flestir vita er það nú ekki skemmtilegt. Margar nætur hef ég bylt mér og hugsað, en ekkert komið. Jæja loksins kom upp ein hgmynd sem mér finnst ekkert sérstaklega góð en eitthvað verður maður að birta til að brjóta ísinn.

Ævintýraferð

Með lokuð augu bíð ég eftir þér í skin og skúrum
eins og fljóð bíður eftir draumaprinsinum.
Til að hrífa sig á brott og á vit ævintýra og gleðilegs endis.
Eins bíð ég eftir þér til að keyra mig í átt að
iðandi heim götunnar.