Að horfa á sjónvarp
er eins og
að búa í öðrum heimi,
að lifa sig inn
í annað líf
þykjast vera einhver annar,
óska þess að vera
á skjánum.

Bíómynd á skjánum,
hasarmynd
gamanmynd
eða jafnvel
spennumynd
þú getur tekið þátt,
stokkið inn,
verið með,
og fundið hasarinn,
spennuna og grínið.