Pælingar Geta svín flogið?
Geta beljur logið?
Geta hænur smogið?

Hafa svín hor?
Hafa beljur sprungið út í vor?
Hafa hænur velt sér í for?

Eiga svín sundgleraugu sem renna?
Eiga beljur trefla þrenna?
Eiga hænur 0,5 Artline penna?

Vilja svín kók?
Vilja beljur það sem afi tók?
Vilja hænur fá sér smók?

Hugsa svín um tré sem benda?
Hugsa beljur um flugur sem lenda?
Hugsa hænur um orma sem senda?
Hugsa ég að þetta fari að enda!