Fljúgðu fljúgðu stelpan mín
fljúgðu á æskunnar slóðir
við erum þar öll og bíðum þín
ástin börnin faðir og móðir.

þar er allt þitt líf og yndi
oftast sæla friður og ró
hjá okkur hjarta þitt fyndi
hlé frá lífsins ólgu sjó.