Hann einn er þess megnugur,
að draga fram
huldar stjörnur augna minna.
Hann einn fær valdið,
ógnarbjörtum bjarmanum.
Og er hann hvístlar að þeim ástarorðum
þá geta allir borið augum,
stjörnuregnið er það fellur
af himnum augna minna.