Spegillinn minn brotnaði.
Fór í mask og frumeindir.

Ég lagðist á fjóra fætur,
ég reyndi
að raða saman brotunum
sem endurköstuðu
glefsum af mér.

Brotin skáru fingur mína.

Og ásetningur minn
að finna öll brotin,
varð að engu
fyrir tilstilli rauðra rósa.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.