Kæfðir hljómar af hnefum á holdi
grátur, hnekkir, ekkert loft
Símar hringdu reglulega á
Lögreglan kom að stöðva
þokukennda sýn pabba - reiði, sorg

Áfengi, öskur, bræði berst úr
herbergi foreldra þeirra
fyrsta vögguvísa - fyrsta sonar
sviti, blóð, tár, sæði og romm
renna, drjúpa niður veggi

minningar af tættu andliti
hvert mar, hvert högg, hvert brotið rif
óma, glymja, hugur sonar
seilist, yfir um, í átt að brúninni
í hverju brosi, í hverju auga, á leið sinni

Jón - til þjónustu reiðu-
búinn að vera………………………………