Ef þér líður illa Það er góður kostur á ögurstund
að taka staf sinn og mal,
ganga einn á öræfafund
og eiga með sjálfum sér einlægt tal.
Líta yfir farinn veg frá hæsta tindi
fylla sál og líkama nýjum þrótti,
úr álögum losnar allt þitt yndi
aflið eykst og hverfur ótti.