Í krumlum köldum löngum,
kafna ljósins börn.
Daga upp á dröngum
eða dregin fyrir björg.

Í gleymsku gróin falla
en geymast vel í jörð.
Viljugir vargar kalla
og vindar fylla skörð.