Ég undrast ekki hatrið
eða smánarlegar tilhneigingar
mannlegs eðlis.

Ég kannast við
gaddavír orða minna.

En þar sem ég sit
og blæs mér í kaun.

Nakin á svelli
ískaldra staðreynda,
og reyni að verma
sál mína með myndum
af óspilltum blóma.
Atburða í upphafi veraldarinnar.

Finn ég kaldan andardrátt
refsinornarinnar
aftan á hálsinum.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.