Sérðu lækinn sem sameinast ánni
og ána sem fellur í faðm hafsins.
Finnirðu vinda himinsins
leika sér í faðmlögum hlýjum,
máttarvöldin sameina allt
líka þig og mig.



Fjöllin kyssa himininn
og bárur hafsins faðmast
hvers virði er það
ef þú kyssir ekki mig.