Tvær litlar,
ljóshærðar
leika sér

Sætar
í sólinni
svo saklausar

Árin renna
áfram
einsog áin

“Eilíf vinátta”

Dökkur
djöfull
dregur okkur í sundur

Hjartað mitt
hrópar
Hættu!

Ég: horfi á þig hverfa

Þú: streitist ekki á móti

Ég
Þú
Við

Eilíf vinátta?