Tregir hálsar
snúa höfða
andvarpa
og brosa
glotta og ráfa
í stefnuleysi sínu

augun svört
og dauf
tómleg og einmana
leitandi að eiganda
án þess að blikka

vafrandi án hugsunar
eltandi drauma
uns þeir skilja
að örlög eru blekkingar

rassalfu