Hann sagði nei,
vatnið hætti að renna,
sólin hætti að skína,
blómin hættu að blómstra,
regnið hætti að falla,
ég hætti að brosa,
ég,
ég sem brosi alltaf,
ég hætti að brosa,
börnin hættu að hlæja,
mamma hætti að elda,
pabbi hætti að smíða,
allt hætti,
afþví að hann,
hann,
sem segir alltaf já,
sagði nei,
hann sagði nei