Tárin mín geyma minningar
minningar um það sem særa,
í tárunum eru tilfinningar
sem titrandi hjartað blæða.

Þau eru dropi í haf örvæntingar
og sársauka sem ég óskaði ekki mér,
í þeim speglast mínar þjáningar
þjáningar sem gista ekki hjá þér.

Þögul þau streyma daga og árin
þyrsta eftir hlýju og ástúð þinni,
hrökkva þó heit eins og hin tárin
hjá klofnu hjarta í slóðinni minni.