Þetta (ljóð) á að varpa skömm og slyddu á þá vini mína sem voguðu sér að lýkja hinu heilaga kynlífi við internettengingar og hafa þannig undirritað dóm sinn með eigin hlátrasköllum er þeir sögðu aulalega (að ekki sé minst á leiðinlega) brandara tengda kynlífi og sítengingu og eiga því ekkert betra skilið en að deyja hægt og sígandi og detta sem steinn einn þungur niður í logandi gapið á helvíti.


Tölvulosti.

Æsandi er alltvista ilmur,
enginn getur staðist slíka sælu.
klámfengnar og kynæsandi filmur,
kalla fram svo unaðslega brælu.

Beintengt reis upp mikið tölvutippi,
tókst það hátt á loft og urðu glaðar,
nethórur sem slefa á cyperflippi,
sorðnar afturbatapíkur graðar.

Þeim er spilla helgum skulum kenna,
og sparka oní eld í miklum flýti.
Þar ekkert chatroom glamúrglenna,
glötuð sálin klæmist ekki´í víti.