Ský á himni
hylur sólina rétt eins og sársaukinn hylur mig.

Mér líður eins og rós
á miðju fíflatúni
mér líður eins og fiski
á þurru landi

Af öllum í heimi
þá er það ég
af öllum á þessari jörðu
þá verður það ætíð ég

Það eina sem ég sé
er það sem er fyrir framan mig
það eina sem ég fynn
er það sem snertir mig

Það eina sem mig langar
er að fljúga burt
burt ur þessum heimi

Er ein með sjálfri mér
dett í myrkrinu
í djúpa
svarta
holu

held áfram að hrapa
þangað til
að ég fynn það grípa mig

þarna erum við
ég og það
á enda veraldar
á leiðinni að detta

eina tilfinningin
sem ég hef fundið fyrir
eina tilfinningin sem ég man eftir

og loksins endaði veröldin öll
og sársaukinn hvarf