Hún fann hnútinn
vaxa í brjósti sér.
Hún óskaði þess
að hún gæti skorið
hann frá hjarta sínu.

En meinið hafði skotið rótum
og hvorki geislar né lyf
gátu blásið til orustu.

Svo hún settist niður,
fékk sér smók,
og orti ljóið
“Að lokum”
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.