Maður situr og starir út í loftið
situr og hugsar
um hvernig menn
elska, missa, gráta og sakna

Manni svíður, brennir, klæjar og svitnar
lífið sem þú eitt sinn þekktir
flöktir fyrir þér þar til
þú sérð blóðið á höndum þér

Þú ælir, öskrar og vælir
engist um í sársauka
finnur til í hverju beini
þar til þú ákveður
að hætta að finna