Lengi mun blóð renna
og sársauki okkur brenna.
Lengi mun stríð háð,
og dauðinn einn veita náð.

Á konung sinn kalla,
konungur senn mun falla.
Hermenn hundrað þjóða,
upp af sársauka hljóða.

Falla margir góðir menn,
sem betur máttu lifa.
Falla munu margir enn,
hætta mun líf að tifa.

Lengi mun blóð renna,
og sárauki okkur brenna…