Handritið var sameiginlegt
og var að mestu spuni
spilaður af stað
í takt við skak og skruðninga
í rúmstokk
Pródúserar voru pabbi og mamma
púngaði pápí út af megni
svo verkið gæti virkað,
og ljósin kviknuðu
“lights, camera, action”
var sagt rólega
undir leikstjórn vakthafandi læknis
sem hjálpaði myndinni
á hvítt lífstjald.
—–