Hvernig gat ég
gert þér þetta?

Skilið þig eftir
með tómleika í hjarta
vaðið yfir allar
þínar tilfinningar

þrátt fyrir mótvilja þinn
sveik ég þig og særði
-og fór,
fór frá þér

aldrei myndi ég
gera þetta aftur
þrátt fyrir það
að enginn eftirsjá ríki
í hjarta mínu

Nema eftirsjáin að hafa sært þig

mína eigin móðir.


ps. ef svo vildi til að mamma læsi þetta þá mátt hún vita að ég elska hana af öllu mínu hjarta! :* þú ert best og takk fyrir allan skilning og alla vernd sem þú hefur veitt mér mamma! ég er þér þakklát núna, þótt ég hafi ekki verið það einu sinni.