Perlað regn
sem sefur
á laufum trjánna.

Hvítir geislar
strjúka þeim
einn kaldan morgun.

Uns þær rætur slíta
og falla
í dökkan svörðinn.