Ég veit ekki
-afhverju ég er alltaf að passa mig
ég hata
-hvernig skynsemin ræður alltaf yfir mér
ég þoli ekki
-að ég geti ekki bara látið allt vera
gefið skít í allt
og gert það sem ég vil
en ekki það sem aðrir vilja
að ég geri

Ég er komin með nóg
alveg nóg
meira en nóg

mig langar til að æla
út um allt
og er komin með handlegginn
lengst oní háls
en það kemur ekkert

því ég passa mig
með skynseminni
og get ekki
gefið skít í allt

sama hvað ég reyni