Hoppa yfir á bláu plötuna
sem hallar.
Renn af
og enda á bakka einveldis.
Snæddur eins og pinnamatur.

Einfrumungur;
renn úr bakhlaðinu
og
út í sjó.

Eimreiðin heldur samt áfram
en
ég er dæmdur
án súrefnis,
drukkna
vonandi.

Góðan daginn
maríó M.
(brosi samt ekki).

Hvernig var þetta allt saman?
Mig minnir….


m.m.