Í austrinu hverfa skuggamyndir hárra hamraborga
með síðasta bliki morgunstjörnu
ljósin sem skinu svo skært í nótt
hverfa eitt af öðru af spegilbláma hafsins.

Sem glitofin sæng á svörtum fjörusteinum
senda silfursjóðir næturinnar tindrandi geisla
á perluskreyttar naktar greinar
í fyrsta bjarma morgunsólar.